Nú? Er sá tími ársins kominn?

rjupa_1038642.jpgBlessaðar rjúpnaskytturnar.

Þá eru þær komnar á kreik, jafn árvissar og jólasveinarnir.

Hvað skyldu þær annars eiga eftir að kosta björgunarsveitirnar mikið í ár?

Og hvað skyldur þessir byssuglöðu menn nú skilja eftir sig margar helsærðar rjúpur sem líða hræðilegar kvalir áður en dauðinn kallar á þær?

Þessi litlu, saklausu en ofsóttu grey sem geta ekkert að því gert þótt þær séu góðar á bragðið.


mbl.is Leituðu að rjúpnaveiðimönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorrí, ég trúi þessu ekki.

born.jpgÞað barasta stenst ekki að hægt sé að höfða mál gegn fjögurra ára gömlu barni í Bandaríkjunum.

Þessi frétt hlýtur að vera byggð á einhverjum misskilningi,ýkt stórlega eða þá að hér er bara sagt rangt frá.


mbl.is Höfða mál gegn 4 ára barni fyrir að bana konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breyttar fyrirsagnir

Já nú er ljótasti hundur í heimi allur. Hvernig væri nú að færa þetta uppá mannfólkið? Við höfum hingað til heyrt "þyngsti maður í heimi látinn" eða "hæsti maður heims látinn" og nú vil ég sjá hér eftir: "ófríðasti maður í heimi látinn eftir stutta sjúkdómslegu......"

Eða: "karlmaður á fimmtugsaldri var tekinn ölvaður undir stýri og tekið var eftir hversu verulega ófríður hann var..."

Hvenær skyldi ljótasta rotta í heimi deyja? Sumum finnst þær allar forljótar hvort eð er.


mbl.is Ljótasti hundur heims dauður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa menn eitthvað rannsakað marhnútastofninn?

Já ég veit að hann flokkast svo sem ekki sem neinn sérstakur nytjafiskur en ég vil benda öllum á að hann hefur samt sem áður nákvæmlega JAFN mikin rétt á að lifa í sjónum og allir aðrir fiskar. Hvaða rétt höfum við mennirnir að flokka suma fiska mikilvægari en aðra? Bara af því að okkur finnst gott að borða þá? Byggist almennt gildismat lífsins á því hvað MÖNNUM kemur best? Það finnst marhnútinum sko alls ekki.

Hvað myndi t.d. manni finnast um  það að vera húkkaður á öngul, lyft upp í snarhasti helsærður, kjafturinn opnaður með valdi og síðan skyrpt uppí mann ógeðslegri slummu af munnvatni - allt uppá von um góða veiði !!! Þetta þarf hann að upplifa og það vorkennir honum ekki nokkur maður.

Nei, mér finnst marhnúturinn alls ekki nógu hátt skrifaður almennt.

 


mbl.is Staða ýsustofnsins slök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru bara 3 lið á Englandi?

Mbl.is segir skilmerkilega frá helstu úrslitum í enska Carling bikarnum í gær. Þar áttust við Arsenal/Liverpool, Chelsea/Bolton og Man City/Scunthorpe svo eitthvað sé nefnt.

Í tíu fréttum á RÚV í gær voru sýnd mörkin úr leik Arsenal/Liverpool en EKKERT sagt frá hinum leikjunum, ekki einu sinni hvernig þeir enduðu!!!

Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld 29.10. var aftur sagt frá leik Arseanl/Liverpool í máli og myndum en EKKI MINNST EINU ORÐI Á HINA LEIKINA - þrátt fyrir að amk í öðrum þeirra voru 2 úrvalsdeildarlið á ferð og annað í toppsæti deildarinnar !!!

Nei það er alveg deginum ljósara að hjá öllum fréttamönnum eru aðeins 3 lið sem skipta máli, Liverpool, Arsenal og Man Utd og þegar Eiður fór frá Chelsea þá misstu þeir endanlega áhuga líka á því liði - liði sem er samt sem áður betra en öll hin 3.

Mikið hrikalega var ég skúffaður þegar ég varð vitni að þessu.


Ég trúi þessu ekki !!

Er Simpson virkilega hætt í Melrose Place???  Ég neita algerlega að trúa þessu. Líf mitt er gersamlega hrunið eftir þessar hrikalegu fréttir. Ég er kominn með ekkasog. Hvað á maður að gera á kvöldin núna?

Jú maður getur auðvitað horft á alla hina stórkostlegu þættina á Skjá einum, t.d. American´s next top model, Bachelor og Bachelorette og alla hina slepjuna.

Nei ég held að um leið og þessi stöð ruglar dagskrána hjá sér þá verður það einn mesti ánægjudagur minn í lífinu. Þá þarf maður ekki að hneykslast neitt og æla yfir þessari ömurlegu dagskrá - maður bara sér hana ekki lengur. Þvílíkur léttir.


mbl.is Simpson hættir í Melrose Place
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Amerískt þjóðfélag í hnotskurn

Ef ég hefði verið í sporum þessa manns þá hefði ég strax öskrað á þessa konu, bölv.... gluggagægirinn þinn, snáfaðu í burtu og hringt samstundist á lögregluna.

Nei, þetta er akkúrat öfugt !!##?? Gluggagægirinn hringir á lögregluna !!!

Segjum ef sá sem var inní húsinu hefði verið kona og sá var úti að ganga karlmaður. Hann hefði hringt samstundist á lögregluna því honum hefði verið misboðið að sjá nakta konu inni hjá sér. Lögreglan hefði mætt á staðinn og það er mjög líklegt að HANN hefði verið handtekinn en ekki hún.

Þetta ömurlega Ameríska þjóðfélag er sjúkt - það höfum við margoft séð.


mbl.is Handtekinn fyrir að hella upp á kaffi berrassaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt of mikið af myndlistarmönnum

Kæru myndlistarmenn,

það er nú bara þannig í þessu þjóðfélagi nú orðið að það hefur enginn efni á að kaupa af ykkur myndirnar.

Fyrst þarf ég t.d. að eiga fyrir mat, svo íbúðaláninu, bílaláninu, fasteignagjöldunum,  rafmagni og hita, hússjóðnum, barnsmeðlaginu, tryggingunum, símanum, nettengingunni, bensíninu, fatarleppum við og við (og einhverju fleiru sem ég man ekki eftir) og þá er bara ekkert eftir til að kaupa málverk, þótt ég gjarnan vildi. Reyndar gat ég leyft mér að kaupa mér einn pinnaís um daginn en það er ekki á hverjum degi. 

Ég legg því til að allir myndlistarmenn leiti sér bara að einhverri góðri vinnu til að þeir geti nú borgað skattana sína með glöðu geði og þurfi ekkert að hafa áhyggjur af því að einhverjar myndir seljist, eða seljist ekki. Bara stimpla sig inn kl 8 og aftur út kl 17 og málið dautt.


mbl.is Myndlistarmenn mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður sunnudagur 4.10.

Já þetta var virkilega góður dagur sunnudagurinn síðasti. Það er bara einhvern veginn þannig að þegar maður vinnur Liverpool þá gleymast allar áhyggjur um stund og allt verður skyndilega bjart og fallegt!

Þegar maður vinnur Liverpool þá gerist eitthvað. Það liðast inní mænuna hrikaleg sælutilfinning og hún leitar niður eftir bakinu, breiðir útúr sér fagnaðarboðskap um allan líkamann, fer að lokum í gegnum ristilinn og þrýstist þaðan út með hvelli. Stókostleg upplifun !

Að vísu var eitt sem skyggði töluvert á þennan sunnudag, svona í bland.

Ég fer gjarnan út með hann Týra littla hundinn minn, í göngu um Laugarneshverfið. Ég er einn af þeim sem gleymir ALDREI að taka með mér "kúkapoka" til að setja í  afurðirnar hans Týra. Nú vorum við þarna á röltinu og hvað sé ég: Hingað og þangað höfðu hinir og þessir hundar skitið og greinilegt að eigandinn hefur algerlega hundsað að setja þetta í poka. Á maður vikilega að nenna að standa í því að vera svona samviskusamur með kúkapokann á lofti þegar það eru svona margir slóðar allt í kringum mann?

Mér finnst þetta hreint og beint ömurlegt og ég skora hér með á ALLA hundaeigendur að birgja sig upp af pokum, hugsa vel um litla kúkinn og setja hann ofaní næstu öskutunnu. (best að vera með glæran poka))

Ég get samt ekki alveg sleppt því að minnast á það að einmitt þegar við Týri vorum að rölta þarna á Laugarneskirkjutúninu, þá verður Týra mál og losar frá sér úrganginn þarna á staðnum. Ég tek strax upp glæran kúkapokann og er reiðubúinn að innbyrða kúkinn. Sé ég þá lítið Liverpool merki liggja við hliðina á kúknum hans Týra. Án nokkurrar umhugsunnar þá tek ég merkið og set með í kúkapokann en þá verður Týri alveg foxillur og harðneitar að kúknum hans sé sýnd þvílík óvirðing. Ég laumaðist samt aðeins síðar þegar hann sá ekki til og setti merkið með í pokann og allt fór síðan ofaní tunnuna heima hjá mér.

Já það mega koma fleiri svona dagar...........! 

 

 


"Eftirávitringarnir"

Auðvitað viðurkennir Geir ekki neitt, ekki frekar en aðrir sem komu okkur niður í þetta svað sem við erum pikkföst í - datt virkilega þessum sjónvarpsmanni það í hug að hann næði fram einhverri játningu??

Það sem hins vegar setur að mér verulegan hroll er að þessa daganna skuli maður lesa að Sjálfstæðisflokkurinn sé að auka töluvert fylgi sitt í skoðanakönnunum?? Er þjóðin virkilega endanlega að ganga af göflunum? Hefur lúmskur Mr. Alzheimer laumast inní heilabúin á almenningi?  

Eigum við vikilega að treysta því að þeir sem sökktu okkur í þetta ótrúlega gjörningafen muni draga okkur upp? Hvaða aðferðum skyldu þeir svo beita við það? Ætla þeir svo að fá til liðs við sig Framsóknarflokkinn aftur, einhvern ömurlegasta spillingar"flokk" Íslandssögunnar??

Ég fullyrði að ekkert í veröldinni getur orðið verra en að það gerist aftur.

Fólk situr brjálað við tölvurnar sínar og telur upp að 10 áður en það lætur allt flakka en ég segi bara hreinskilningslega: Ekki aftur þessa ömurlegu flokka.  Það er mun betra að hafa þá í stjórnarandstöðu fyrst þeir þurfa endilega að vera þarna inná alþingi. Reyndar kunna þeir það ekki heldur og skilja stundum ekkert í ríkistjórninni að hafa ekki meira samráð við þá í hinum og þessum málum ??!! Eru menn búnir að gleyma því hvernig var að vera í stjórnarandstöðu þegar þessi flokkar voru við völd? Öll mál keyrð í gegn og stjórnarandstaðan gersamlega hundsuð ár eftir ár.

Síðan er auðvitað þessi svokallað "Borgarahreyfing" (sem heitir núna "Hreyfingin") algert grín frá upphafi til enda. Hvers vegna í ósköpunum þarf að verja skattpeningum mínum í að borga þessu fólk há laun fyrir að bulla einhverja tóma vitleysu viku eftir viku ??

Áfram Chelsea !

 


mbl.is Hefðu átt að minnka umsvifin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Og svaraðu nú:

Styður þú Jón Gnarr sem borgastjóra?
Er Guð til?
Hefur þú haldið framhjá?

239 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband